Orchestra tveggja hluta ungbarnasett í stærð 6 mánaða, sem samsvarar um 68 cm. Ljósbeige, mjúkt og hlýtt bangsasett úr dúnmjúku teddy-flísefni. Peysa með bangsaandliti og litlum upphleyptum eyrum, ásamt samsvarandi buxum. Stroff á ermum, skálmum og í mitti. Sætt og hlýlegt ungbarnasett, tilvalið fyrir kaldari daga, í barnavagninn eða til daglegrar notkunar. Selt saman, 2 flíkur.