Hlýr og vandaður Wheat snjógalli í dökkbláum lit með hettu og loðkanti. Gallinn er með endurskini og styrkingum þar sem mest mæðir á.
Vantar eina teygju undir fót, en festingarnar/tölurnar fyrir teygjuna eru enn til staðar. Aðeins snjáður á álagssvæðum, sjá mynd. Annars fínn galli sem á alveg helling eftir.